Fótboltamaðurinn Sölvi Geir Ottesen hefur fest kaup á glæsihúsi við Undraland í Fossvogi. Húsið vakti athygli þegar það kom á sölu. Hann hefur nú gert samning við taílenska liðið Buriram United en hann spilaði áður með kínverska liðinu Wuhan Zall sem hann lék með á síðustu leiktíð en þar á undan spilaði hann með Jiangsu Sainty í Kína. Samningur Sölva við taílenska liðið er til 11 mánaða en það hafnaði í fjórða sæti í deildinni á síðustu leiktíð.
Sölvi er 32 ára gamall og á að baki 28 leiki með íslenska landsliðinu. Hann hóf feril sinn í atvinnumennskunni með sænska liðinu Djurgården árið 2004 og hefur síðan leikið með dönsku liðunum SönderjyskE og FC Köbenhavn, Ural í Rússlandi og með kínversku liðunum Jiangsu Sainty og Wuhan Zall.
Það mun ekki væsa um hann í Fossvoginum enda skjólsælt þar og mikil veðurblíða allan ársins hring.