Brynja Dan Gunnarsdóttir, markaðsstjóri S4S, hefur sett sitt fallega heimili á sölu. Brynja er ein best klædda kona landsins og svo á hún ákaflega smekklegt heimili.
Ljósir litir eru áberandi heima hjá Brynju en í eldhúsinu er hvít innrétting og ljósar borðplötur. Á einum veggnum er pandomo-veggur og hvítar opnar hillur. Þetta býr til stemningu í eldhúsinu.
Heima hjá Brynju er húsgögnum raðað fallega upp og á hver hlutur sinn stað.