Eiður Smári Guðjohnsen og Ragnhildur Sveinsdóttir hafa sett sumarhús sitt á sölu. Hjónin skildu í fyrra.
Sumarhúsið er 190 fm að stærð en það var byggt 2009. Húsið er einstaklega glæsilegt og fallegt eins og sést á myndunum.
Aðalrýmið er opið og bjart. Eldhúsið er opið inn í stofu með borðstofuborði. Hátt er til lofts og gluggar stórir.