Ásta Sigurðardóttir lét veggfóðra einn vegg í hjónaherbergi sínu í Fossvogi. Hún valdi veggfóður frá Versace sem kemur með alveg nýja dýpt inn í herbergið. Í leiðinni málaði hún veggina í stíl og lakkaði hjónarúmið.
Veggfóðrið sem Ásta valdi fæst í Parka en þeir flytja inn Versace-veggfóðrin. Veggfóðrið hennar Ástu er hnausþykkt og með þannig áferð að auðvelt er að þrífa það.