Frosti Logason og Helga Gabríela Sigurðardóttir hafa sett sína huggulegu íbúð við Holtsveg í Garðabæ á sölu. Þú getur tekið hring í íbúðinni hér:
https://my.matterport.com/show/?m=mGwtHnzYNxt
Íbúðin er 129 fm að stærð og er nýlega en blokkin var byggð 2016. Ásett verð er 64,9 milljónir sem gera fermetrann á tæpar 500.000 krónur.
Íbúðin er með svörtum bæsuðum innréttingum bæði í eldhúsi og á baðherbergi. Innihurðir eru líka svartbæsaðar og einnig fataskápar.