Bloggarinn og áhrifavaldurinn Sólrún Diego og unnusti hennar, Frans Veigar Garðarsson, festu kaup á 318 fm einbýlishúsi í Mosfellsbæ 9. september. Húsið er glæsilegt á velli en það var áður í eigu Róberts Melax og Áslaugar Jónsdóttur.
Sólrún og Frans leigðu íbúð í Kópavogi áður og greindi Smartland frá því að umrædd íbúð væri án efa best þrifna íbúð landsins.
Um þessar mundir eru Sólrún og Frans í miklum framkvæmdum í húsinu en fylgjendur samfélagsmiðlastjörnunnar geta fylgst með í beinni.
Það sem vekur athygli er kannski að fasteignamat hússins verður 108.400.000 kr. 2019. Það er hraustlegt. Þetta er reyndar ekki þeirra fyrsta eign heldur eign númer tvö.
Fylgjendur Sólrúnar á Snapchat hafa rekið augun í að Sólrún er sparsöm og tókst henni að eyða mun minni peningum í mat en okkur hinum.
Ef parið færi út í að bjóða upp á námskeið í sparnaði gætu þau örugglega fyllt nokkrar Laugardalshallir.