Róbert Wessman forstjóri Alvogen er fluttur í Arnarnesið í Garðabæ ásamt unnustu sinni Kseniu Shakhmanova. Húsið sem fjölskyldan býr í er 426 fm að stærð og er fasteignamat þess fyrir 2019 144.650.000 kr.
Húsið er skráð á félagið HRJÁF ehf. en félagið festi kaup á húsinu 2017 og stendur það við Tjaldanes í Arnarnesinu.
Parið á von á barni í apríl og því ætti ekki að væsa um fjölskylduna.