Helgi Seljan og Katrín Rut Bessadóttir hafa sett sína fallegu íbúð á sölu. Um er að ræða 83 fm íbúð við Gunnarsbraut í Reykjavík. Parið hefur búið sér fallegt heimili í Norðurmýrinni þar sem ljósir og lokkandi litir ráða ríkjum.
Í eldhúsinu er hvít sprautulökkuð innrétting með viðarborðplötum og er skipulagið gott. Í stofunni eru veggirnir málaðir í ljósgráum tónum sem passa vel við sófann, listaverkin og hvítu hillurnar. Baðherbergið er stílhreint en það er flísalagt í hólf og gólf með baðkari og sturtu.
Helgi og Katrín eignuðust nýlega sitt þriðja barn og því hefur fjölskyldan ákveðið að selja íbúðina og flytja sig um set.