Íþróttastjarnan og rithöfundurinn, Þorgrímur Þráinsson, hefur sett sitt fallega hús á sölu. Um er að ræða 150 fm tvíbýli við Tunguveg í Reykjavík.
Húsið er ákaflega sjarmerandi enda er búið að nostra við það eins og sést á myndunum. Það var byggt 1960 og með húsinu fylgir skjólgóður garður.
Í eldhúsinu er grá innrétting með gráum borðplötum. Stíllinn á heimilinu er svolítið sveitalegur en á sama tíma nútímalegur. Á heimilinu er húsgögnum raðað upp á skemmtilegan hátt og fær hver hlutur að njóta sín.