Háahlíð í Reykjavík er eitt fallegasta hús landsins. Um er að ræða fasteignina Háuhlíð 16 sem er 555 fm að stærð. Húsið var byggt 1955.
Húsið var stækkað árið 1990 og eru allar innréttingar í húsinu sérlega vandaðar. Húsið er á þremur hæðum en gengið er inn á miðhæðina.
Allt yfirbragð á húsinu er eins og best verður á kosið. Hægt er að gera tilboð í húsið en fasteignamat þess er 135.350.000 kr.
Eigendur hússins eru Maríanna Gunnarsdóttir, Gunnar Jóhann Gunnarsson og Grétar Þórarinn Gunnarsson.