Nýuppgert heimili í Laugardal

Tara og Egill fengu hönnunarteymið HAF Studio til að endurskipuleggja …
Tara og Egill fengu hönnunarteymið HAF Studio til að endurskipuleggja íbúðina. mbl.is/Haraldur Jónasson/Hari

Tara Brynjarsdóttir grunnskólakennari býr ásamt Agli Þormóðssyni og dóttur þeirra Aríu í fallegu og nýlega innréttuðu heimili í Laugardalnum í Reykjavík.

Tara og Egill fengu íbúðina afhenta í október 2018 og hófust þá strax handa við framkvæmdir en þau fluttu inn í mars 2019. Parið gjörbreytti íbúðinni og fékk hönnunarteymið HAF Studio til þess að teikna og endurskipuleggja íbúðina.

„Við færðum útidyrnar, eldhúsið og baðherbergið ásamt því að brjóta niður veggi til þess að opna íbúðina alla, við þetta varð hún mun bjartari og skemmtilegri. Ekki skemmir heldur að við fengum þetta æðislega fjölskylduvæna rými sem samanstendur af stofu, borðstofu og eldhúsi,“ útskýrir Tara og bætir við að þau hafi fengið mikla hjálp frá fjölskyldunni í framkvæmdunum sem hafi verið ómetanlegt.

Spurð að hverju sé mikilvægast að huga í skipulagi heimilisins segir Tara hjarta heimilisins skipta mestu máli.

„Fjölskyldan ver sem mestum tíma saman í sameiginlegu rými stofu, borðstofu og eldhúss. Annað svefnherbergið var stærra en eldhúsið og lá við stofuna, þar af leiðandi þótti okkur kjörið tækifæri að víxla þessum tveimur rýmum og brjóta vegginn á milli svo við gætum átt stærra sameiginlegt rými.“

Tara Brynjarsdóttir á fallegt heimili.
Tara Brynjarsdóttir á fallegt heimili. mbl.is/Haraldur Jónasson/Hari

Tara er alin upp á heimili þar sem hlutir þurfa að hafa fallegt form og notagildi og áhersla lögð frekar á að kaupa vandaða hluti og þá sjaldan og segir hún stílinn sinn hafa mótast af því hugarfari.

„Annars er ég opin fyrir flestu. Ég nota og kaupi það sem mér finnst fallegt hverju sinni en reyni að fylgja þeim áhrifum sem uppeldið hefur haft.“

Hvað varðar nýlegri muni verslar parið helst í HAF Store, Ikea, Dimm og Snúrunni.

„Einnig er ég dugleg að kíkja á nytjamarkaði, þar er stundum hægt að detta niður á góða vandaða hluti. Auðvitað spilar uppeldið inn í; kaupa frekar vandað og sjaldan.“ Spurð hver sé eftirlætishlutur hennar á heimilinu svarar Tara:

„Mér þykir óskaplega vænt um teppi sem mamma heklaði handa mér þegar ég var yngri, sem er rúmteppið hennar Aríu núna. Svo held ég fast í alla hluti sem ég hef erft og hafa tilfinningalegt gildi.“ Margir af fallegum munum heimilisins eru einmitt frá langömmum Töru og Egils. Tara er jafnframt dugleg að skoða Pinterest í leit að innblæstri.

„Þá horfum við Egill mikið á The Block Australia sem eru frábærir þættir til þess að fá hugmyndir. Mamma og tengdamamma eru líka duglegar að sýna mér fallega hluti og rými. Kolla tengdamamma er dugleg að ýta mér út fyrir þægindarammann og koma með góðar hugmyndir.“

Brass-höldurnar voru sérhannaðar við borðstofuljósið sem er frá HAF Store …
Brass-höldurnar voru sérhannaðar við borðstofuljósið sem er frá HAF Store en innréttingin er frá HTH. mbl.is/Haraldur Jónasson/Hari

Aðspurð hvaða rými sé í eftirlæti á heimilinu nefnir Tara eldhúsið. „Ég naut þess munaðar að fá að hanna draumaeldhúsið mitt, hluti þess var að við færðum til veggi. Við mæðgur erum duglegar í eldhúsinu og eigum margar gæðastundir þar.“

mbl.is/Haraldur Jónasson/Hari

Fjölskyldan kann ákaflega vel við sig í Laugardalnum en Egill ólst þar upp. „Allt það helsta er í göngufæri; sundlaugin, verslun, fiskbúð, bakarí og heilsurækt, að auki góðir skólar og íþróttafélög. Þegar við fórum að skoða íbúðir heillaði þessi staðsetning okkur mest! Ekki skemmir fyrir að ég vinn svo í göngufæri frá heimilinu þannig að við þurfum ekki að nota bíl eins mikið og áður.“

Falleg uppröðun smáhluta í stofunni.
Falleg uppröðun smáhluta í stofunni. mbl.is/Haraldur Jónasson/Hari
Málverkið er eftir Hafstein Austmann og veggvasarnir eru frá Ker.
Málverkið er eftir Hafstein Austmann og veggvasarnir eru frá Ker. mbl.is/Haraldur Jónasson/Hari
mbl.is/Haraldur Jónasson/Hari
Mildir litir setja hlýlegan svip á hjónaherbergið.
Mildir litir setja hlýlegan svip á hjónaherbergið. mbl.is/Haraldur Jónasson/Hari
Baðherbergið er flísalagt með terrazzo-flísum. Innréttingin er sérhönnuð og kemur …
Baðherbergið er flísalagt með terrazzo-flísum. Innréttingin er sérhönnuð og kemur ákaflega vel út. mbl.is/Haraldur Jónasson/Hari
mbl.is/Haraldur Jónasson/Hari
Stóri spegillinn og skáparnir frá HTH ljá holinu fágaðan svip.
Stóri spegillinn og skáparnir frá HTH ljá holinu fágaðan svip. mbl.is/Haraldur Jónasson/Hari
Forstofan er flísalögð með terrazzo-flísum.
Forstofan er flísalögð með terrazzo-flísum. mbl.is/Haraldur Jónasson/Hari
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál