Við Skorradalsvatn stendur afar sjarmerandi hús sem byggt var 1977. Um er að ræða sérstakt skógarhús sem upphitað er með kamínu.
Í húsinu eru stórir gluggar og stór pallur í framhaldi af húsinu. Í húsinu er eingöngu kalt vatn.Ef þig dreymir um stað þar sem þú getur hvílt þig og nært þig andlega og líkamlega þá er þetta eitthvað fyrir þig.
Í húsinu er lítið eldhús með svörtum framhliðum. Eins og sjá má á myndunum er þetta hús einstaklega sjarmerandi.