Við Spítalastíg í Reykjavík er afar hugguleg 55.2 fm íbúð í húsi sem byggt var 1922. Logi Pedro Stefánsson tónlistarmaður er eigandi íbúðarinnar en hún hefur verið í hans eigu síðan 2018. Nú vantar fjölskylduna örlítið meira pláss og því er íbúðin komin á sölu.
Þessi íbúð er í raun engin venjuleg íbúð því um endaraðhús á tveimur hæðum er að ræða á þessum klassíska og góða stað í Reykjavík. Heimilið er ákaflega sjarmerandi og heillandi og fá ljósir litir að njóta sín í bland við plöntur og við. Í eldhúsinu er hvít innrétting með eikarborðplötum. Gömul gólfborðin í þessu rými eru afar sjarmerandi.