Fasteignin við Hrólfsskálavör 2 var seld Arion banka hf. 4. september. Húsið var áður í eigu Skúla Mogensen, fyrrverandi forstjóra Wow air. Hann festi kaup á húsinu 2016 og hófst þá handa við að innrétta það. Húsið við Hrólfsskálavör 2 þykir eitt glæsilegasta hús landsins og var það teiknað af arkitektum Studio Granda.
Innanhússhönnun var í höndum Grímu Bjargar Thorarensen, innanhússhönnuðar hjá GBT Interiors, og Selmu Ágústsdóttur hjá Namó Desing.
Eldhúsinnrétting hússins er frá Poggenpohl og Boffi sem eru ítölsk hönnunarfyrirtæki. Húsið er 609 fm að stærð og búið öllum þeim þægindum sem glæsieign þarf að hafa til að bera. Ekki er vitað hvað greitt var fyrir húsið en 2018 tók Skúli lán hjá Arion banka hf. að andvirði 443 milljóna ef miðað er við gengi dagsins í dag.
Fasteignamat hússins er 192.250.000 kr.