Skúli Mogensen fyrrverandi forstjóri WOW air er fluttur út úr fasteigninni, Hrólfsskálavör 2. Arion banki eignaðist húsið á dögunum eins og Smartland greindi frá. Samkvæmt kaupsamningi fékk bankinn húsið afhent 11. september síðastliðinn.
Húsið stendur á besta stað á Seltjarnarnesi og flæðir hafið inn um stóra gluggana. Húsið er hannað af Studio Granda og voru það Selma Ágústsdóttir og Gríma Björg Thorarensen innanhússhönnuðir sem hönnuðu húsið að innan. Í eldhúsinu er glæsileg innrétting með gráum marmara og kemur hún frá Poggenpohl og Boffi.
Húsið er ennþá á sölu en hinir og þessir aðilar hafa verið orðaðir við húsið og sú saga gengur um bæinn að Kári Stefánsson hyggist kaupa húsið. Smartland hefur þó ekki fengið það staðfest og það tekið fram að Arion banki er eigandi hússins.