Íslenskur milljarðamæringur keypti af Kalla í Pelsinum

Haraldur Ingi Þorleifsson, stofnandi Ueno.
Haraldur Ingi Þorleifsson, stofnandi Ueno. mbl.is/Golli

Fé­lagið Unn­ar­stíg­ur ehf., sem er í eigu Har­ald­ar Inga Þor­leifs­son­ar, hef­ur fest kaup á pent­hou­se-íbúð Kalla í Pels­in­um. Smart­land fjallaði um íbúðina þegar hún kom á sölu. Um er að ræða 326 fm íbúð sem stend­ur við Tryggvagötu 18a. Í sama húsi hef­ur Ester rekið versl­una Pels­inn og ger­ir enn. 

Har­ald­ur Ingi stofnaði hönn­un­ar­fyr­ir­tækið Ueno 2014. Í byrj­un árs keypti Twitter Ueno. Árið 2019 greindi Viðskipta­blaðið frá því að fé­lagið velti á þriðja millj­arði. Sama ár var Har­ald­ur Ingi val­inn viðskipta­fræðing­ur árs­ins af Fé­lagi viðskipta- og hag­fræðinga. 

„Þetta kom mér virki­lega á óvart. Fyr­ir það fyrsta þá hef ég aldrei starfað sem viðskipta­fræðing­ur þótt ég hafi klárað viðskipta­fræði fyr­ir löngu. En ég er vissu­lega í viðskipt­um og rek mitt eigið fyr­ir­tæki þannig að þetta er ekki al­veg út í blá­inn,“ sagði Har­ald­ur í viðtali í Viðskipta­blaðinu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda