Grínistinn og hlaðvarpsstjarnan Helgi Jean Claessen hefur leyft lesendum Smartlands að fylgjast vel með því hvernig hann hefur gert upp heimili sitt. Næst á dagskrá var svefnherbergið en Helgi reyndi að gera það eins kósí og hann gat.
Helgi festi kaup á húsinu, sem hann kallar Kakókastalann, fyrir rúmu ári og hefur síðan þá verið sveittur að gera það upp. Hann hefur fullorðnast heil ósköp eftir að hann hóf þessar framkvæmdir enda að mörgu að huga.