Lóðirnar þrjátíu Í Hvammsvík sem Skúli Mogensen, athafnamaður og fyrrverandi forstjóri WOW air, setti á sölu fyrir helgi seldust upp nánast samstundis.
Í viðtali við Viðskiptablaðið segir Gunnar Sverrir Harðarson fasteignasali að strax hafi myndast biðlisti eftir lóðunum en þær voru auglýstar á laugardag.
Lóðirnar voru þrjátíu og áður en þær fóru á sölu höfðu átta verið teknar frá. Verðið á þeim var frá sex og upp í fimmtán milljónir króna.