Bjössi ehf. selur 65 milljóna lóð í Garðabænum

Fyrirtækið Bjössi ehf., sem er í eigu Björns Sigurðssonar, hefur sett lóð við Steinprýði 6 í Garðabænum á sölu. Steinprýði er í prýða hverfinu í Garðabænum sem er á vinstri hönd þegar keyrt er út á Álftanes. Um er að ræða 1790 fm lóð, sem er mjög stór miðan við hefðbundnar einbýlishúsalóðir. Fyrirtækið keypti lóðina í september í fyrra. 

Í raun er lóðin ígildi þriggja lóða en það kemur fram í auglýsingu að einungis sé leyfi til að byggja eitt stórt hús á lóðinni. Húsið má þó vera á tveimur hæðum.

Bjössi ehf. er jarðvinnslufyrirtæki sem hefur verið í ýmsum verkefnum síðustu ár og mest unnið fyrir Kópavogsbæ og Reykjavíkurborg. Auk þess að vera í jarðvegsskiptum er fyrirtækið með vélaleigu, skiptir um dren, er í sólpallasmíði, malbikun, grjóthleðslu og vinnur við snjómokstur. 

Hægt er að skoða lóðina nánar á fasteignavef mbl.is: Steinprýði 6

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda