Sveinn Biering Jónsson keypti glæsilegt einbýlishús við Blikanes í Arnarnesi 20. apríl síðastliðinn. Húsið verður afhent 1. september næstkomandi. Húsið var til umfjöllunar á Smartlandi þegar það fór á sölu á síðasta ári.
Húsið er 367 fm að stærð og var byggt 1966. Guðmundur Þór Pálsson arkitekt hannaði húsið á sínum tíma og stenst sú hönnun tímans tönn. Gott flæði er í húsinu, stórir gluggar, hátt til lofts og vítt til veggja.
Það ætti því ekki að væsa um Svein og fjölskyldu í húsinu.