Leikkonan Vala Kristín Eiríksdóttir og rithöfundurinn Birkir Blær Ingólfsson hafa sett notalega íbúð sína á Leifsgötu á sölu. Íbúðin er 62 fermetrar með einu svefnherbergi. Ásett verð er 49,5 milljónir.
Búið er að gera íbúðina upp á fallegan hátt og er eldhúsið sjarmerandi með skemmtilegum gulum ísskáp. Það er augljóst að parið er með grænar fingur en víða er að finna pottaplöntur hvort sem það er í eldhúsi eða stofu.
Vala Kristín hefur gert það gott í Borgarleikhúsinu meðal annars í söngleikjum og gamanverkum. Hún leikur einnig í þáttunum Venjulegt fólk sem skrifar þar að auki. Birkir Blær var einn af handritshöfundum Ráðherrans og hlaut Íslensku barnabókaverðlaunin fyrir bókina Stormsker fyrir nokkrum árum.