Við Fáfnisnes í Skerjafirði er að finna einstakt 195 fermfetra einbýli með gullfallegum garði í suður. Húsið var byggt árið 1966 en hefur verið mikið endurnýjað á undanförnum tveimur áratugum.
Húsið er í fallegum skandinavískum stíl þar sem inni- og útirými kallast á. Pallurinn og garðurinn er svo sannarlega draumur sóldýrkandans og garðálfsins en þar eru mörg tækifæri til þess að gera fallegt í kringum sig. Á pallinum er heitur pottur og úti sturta.
Fjögur svefnherbergi eru í húsinu en hjónaherbergið er sérlega fallegt og með baðherbergi.