Við Suðurgötu á Akranesi er að finna glæsilega og stílhreina hæð í snyrtilegu húsi sem byggt var árið 1954. Eignin hefur verið mikið endurnýjuð síðustu ár, en íbúðin ásamt bílskúr er skráð 175 fermetrar að stærð.
Gengið er inn í opið rými, en þar er að finna forstofu, borðstofu, eldhús og stofu. Eldhúsið er bjart og stílhreint með hvítri innréttingu og kvarts borðplötu. Viðarlitur á eyju gefur rýminu hlýju og tónar vel við fallegan lit á veggjum íbúðarinnar. Frá á borðstofunni er útgengt á sólstofu.
Í stofunni má sjá sérlega fallegan steyptan vegg sem gefur rýminu mikinn karakter og glæsibrag.
Þrjú svefnherbergi eru í íbúðinni ásamt glæsilegu baðherbergi með rúmgóðri sturtu og innbyggðum blöndunartækjum.