Rithöfundurinn og handsritshöfundurinn Mikael Torfason og leikkonan Elma Stefanía Ágústsdóttir hafa sett íbúð sína við Hrísrima í Grafarvogi á sölu.
Mikael og Elma hafa verið búsett í Berlín í Þýskalandi að undanförnu en þar áður bjuggu þau í Austurríki.
Þrjú svefnherbergi eru í íbúðinni sem telur alls 89 fermetra. Við íbúðina er glæsilegur sólpallur en hún er á fyrstu hæð.
Ásett verð er 64.900.000 krónur.