Söngkonan Jóhanna Guðrún Jónsdóttir og kærasti hennar, Ólafur Friðrik Ólafsson viðskiptafræðingur, hafa fest kaup á glæsilegu parhúsi í Hafnarfirði. Smartland fjallaði um húsið þegar það var sett á sölu í sumar. Parhúsið er 278 fm að stærð og var byggt 2008.
Húsið er vel skipulagt á tveimur hæðum. Á efri hæðinni er að finna stofu og eldhús og þar er hátt til lofts og sérlega bjart. Flísar eru á gólfum og innréttingar í ljósum við. Húsið stendur alveg á jaðrinu þar sem óbeisluð náttúra fær að njóta sín.
Það á ekki eftir að fara illa um Jóhönnu Guðrúnu, Ólaf Friðrik og börn í húsinu enda hverfið rólegt og barnvænt.
Smartland óskar þeim til hamingju með fasteignakaupin!