Rithöfundurinn Guðrún Eva Mínervudóttir hefur sett einbýlishús sitt í Hveragerði á sölu. Þetta er þó ekki hefðbundið einbýli því auk þess er að finna tvö gestahús, eldkynnta sánu og heitan pott. Rithöfundurinn hefur rekið gistihúsið Backyard Village við heimili sitt og hefur það verið eftirsóttur áfangastaður.
Einbýlishúsið sjálft er 130 fm en allt í allt eru húsin á lóðinni 218 fm að stærð.
Heimili rithöfundarins iðar af lífi og en þar er að finna marga skemmtilega hluti sem er raðað saman af mikilli innlifun. Það sama má segja um gistiheimilið sjálft svo ekki sé minnst á garðinn sem umlykur húsið. Hann er gróinn og fallegur. „