Við Blönduhlíð í Reykjavík er að finna sjarmerandi hæð í fallegu fjölbýlishúsi sem byggt var árið 1947. Íbúðin er skráð 158 fm að stærð, en í henni eru fjögur svefnherbergi og tvö baðherbergi.
Íbúðin er afar stílhrein með fallegum húsmunum, en hún hefur verið töluvert endurnýjuð á síðustu átta árum. Gengið er inn í forstofu með fallegum flísum á gólfi þar sem falleg rennihurð skilur að forstofu og alrými.
Eldhús, stofa og borðstofa eru samliggjandi í björtu rými, en stór og afar sjarmerandi gluggi í borðstofunni hleypir miklu dagsljósi inn. Hin klassísku Flowerpot-ljós prýða stofu og borðstofu, en þar má einnig sjá margar plöntur sem gefa rýminu hlýju og lit.
Eldhúsið er mjög svipsterkt, en þar eru skemmtilegar mynstraðar flísar á gólfi og svokallaðar „subway-flísar“ á veggjum sem eru klassískar og tímalausar.