Útvarps- og sjónvarpsmaðurinn Andri Freyr Viðarsson og Hjördís Erna Þorgeirsdóttir hafa sett íbúð sína við Kleppsveg á sölu. Um er að ræða 107 fermetra íbúð á besta stað í Reykjavík.
Andri Freyr og Hjördís slitu sambandi sínu á síðasta ári eftir nokkurra ára samband.
Andri er án efa á meðal þekktustu útvarpsmanna landsins en hann reis til frægðar í morgunþættinum Virkir morgnar, sem hann stýrði ásamt Guðrúnu Dís Emilsdóttur. Andri hefur einnig látið til sín taka í sjónvarpinu en hann heillaði þjóðina í þáttunum Andri á flandri sem sýndir voru á RÚV.
Íbúðin á Kleppsveginum er ákaflega hlýleg og falleg. Hún er á fjórðu hæð og þaðan er fallegt úrsýni yfir Laugardalinn og miðborg Reykjavíkur. Þrjú svefnherbergi eru í íbúðinni.