Rut Káradóttir, sem er einn vinsælasti innanhússarkitekt landsins, hefur sett einbýlishús sitt og eiginmanns síns, Kristins Arnarsonar, á sölu. Það telst til tíðinda þar sem Rut og Kristinn hafa búið í sama húsinu frá 2002. Þau festu kaup á húsinu þegar Rut var nýflutt til Íslands eftir að hafa lært innanhússarkitektúr á Ítalíu.
Húsið er 242 fm að stærð og var byggt 1970. Síðan hjónin festu kaup á húsinu hefur það tekið miklum breytingum. Til að byrja með var skipt um innréttingar og húsið endurskipulagt í takt við nútímaþarfir.
Seinna byggðu þau við húsið til að koma fyrir spa-rými og betri vinnuaðstöðu. Þá var garðurinn endurnýjaður meðal annars með steyptum skjólveggjum og veðruðum viðarpöllum.
Húsið er á pöllum. Gengið er inn sunnanmegin við húsið og er þar bílskúr, gestasnyrting og vinnuherbergi. Þaðan er gengið upp á næsta pall sem hefur að geyma stofu, eldhús og vinnustofu.
Eldhúsið er vel skipulagt. Þar er stór eyja í aðalhlutverki og á veggnum bak við hana er mikið skápapláss. Til hliðar við eldhúsið er „vinnueldhús“ sem er gott rými er fyrir tæki og tól sem nýtast til matargerðar. Í stofunni er arinn sem klæddur er með „gun-metal“ járni.
Úr stofunni og eldhúsinu er einstakt útsýni yfir Elliðaárdalinn, Esjuna og Akrafjall. Á neðsta pallinum er að finna tvö svefnherbergi, baðherbergi, víngeymslu auk spa-rýmisins með gufubaði, heitum potti og arni.
Í gegnum tíðina hefur verið fjallað ítarlega um húsið bæði hérlendis, þar á meðal á Smartlandi og í erlendum hönnunartímaritum.