Ólafur Stephensen framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda og Ragnheiður Agnarsdóttir stofnandi Heilsufélagsins hafa sett einbýlishús sitt við Hamarsgerði á sölu. Húsið er 181 fm að stærð og var byggt 1959.
Ólafur og Ragnheiður hafa komið sér vel fyrir í húsinu en innbú þeirra státar af fallegum húsgögnum, listaverkum og skrautmunum. Í kringum húsið er fallegur og skjólgóður garður sem hlúð hefur verið að. Í garðinum er heitur pottur og falleg verönd.
Í húsinu eru sex svefnherbergi og þrjú baðherbergi sem hentar vel fyrir barnmargar fjölskyldur.