Hanna Kristín Skaftadóttir, viðskiptafræðingur, doktorsnemi og fagstjóri viðskiptagreindar við Háskólann á Bifröst, hefur sett íbúð sína við Melabraut á Seltjarnarnesi á sölu. Hanna Kristín trúlofaðist Atla Frey Sævarssyni fyrr á þessu ári en sá bað hennar á eyjunni Tenerife.
Eignin er 141.1 fm að stærð og í snyrtilegu fjölbýlishúsi sem reist var árið 1956. Hanna Kristín hefur innréttað íbúðina á afar fallegan máta og býður eignin upp á heilmörg tækifæri fyrir nýja eigendur.
Íbúðin er björt og skemmtilega innréttuð með sérsmíðuðum og vönduðum innréttingum. Í stofunni er stór gluggi og á einum veggnum er að sjá Fibro tech plötu sem eru mjög vinsælar um þessar mundir. Sérhannaður ljósbúnaður er í íbúðinni en hann er innfeldur í loftum með sérstöku stýrikerfi og því hægt að framkalla hlýlega stemningu.