Við Haðaland 1 í Fossvogi er að finna einstaklega vel upp gert og smart einbýli. Húsið er 226 fm að stærð og var byggt 1968.
Alma Ösp Arnórsdóttir og Snorri Freyr Fairweather festu kaup á húsinu 2021 og hafa gert það upp á einstaklega smekklegan hátt.
Eldhúsið er eins og á fimm stjörnu hóteli með marmarklæddri eyju og marmaraklæðningu á vegg fyrir ofan vaskinn. Innréttingarnar í eldhúsinu eru úr bæsaðri eik. Loftgluggi er fyrir ofan eldavélina í eyjunni og vaskinn og því er svolítið eins og himnarnir hafi opnast ef vel viðrar í Fossvoginum.
Í eldhúsinu er bekkur með fallegum pullum og lítið hringborð sem getur skapað notalega kaffihúsastemningu.
Endurbæturnar á húsinu eru afar fallegar eins og sést á fasteignavef mbl.is.