Áslaug Björgvinsdóttir lögmaður á lögmannstofunni LOGOS hefur fest kaup á glæsilegri 139,9 fm íbúð við Hallgerðargötu í Reykjavík. Íbúð Áslaugar stendur í blokk sem reist var 2020. Íbúðirnar á þessum stað eru eftirsóttar enda vel staðsettar í hjarta Reykjavíkur þar sem stutt er í allar áttir. Áslaug greiddi 112 milljónir fyrir íbúðina.
Hús Áslaugar og fyrrverandi eiginmanns hennar, Reynis Berg Þorvaldssonar, við Sunnuveg 5 í Reykjavík var auglýst til sölu í haust og er það enn á sölu.
Smartland óskar Áslaugu til hamingju með íbúðina!