Smekkur manna er misjafn en hann skiptir þó sköpum þegar verið er að selja fasteign. Bleiki prinsessustíllinn hentar ekki öllum og hann gæti fælt kaupendur frá.
Í umfjöllun The Times kemur fram að lykilatriði sé að halda heimilinu hlutlausu og einföldu. Yfirþyrmandi persónuleikinn má ekki skína í gegn.
„Það er mikilvægt að þekkja markhópinn og vita hvað virkar fyrir þitt svæði. Það fyrsta sem fólk þarf að gera er að gera viðamikla tiltekt. Passa upp á að eldhúsið og baðherbergið sé hreint. Því meira autt borðpláss sem fólk sér inni í eldhúsi því betra. Þá á ekki að geyma neitt ofan á efri skápunum, fataskápum eða undir sófa eða rúmi,“ segir Eva Bouzaki fasteignasali í London.
„Þá þarf að gæta þess að heimilið sé ekki fullt af persónulegum minjagripum. Það þarf til dæmis að fjarlægja allar fjölskyldumyndir. Við viljum að fólk geti ímyndað sér að það búi þarna og geti lifað þar hamingjusömu lífi. Það þarf að geta staðsett sig í rýminu og tileinkað sér lífsstílinn. Það gæti til dæmis hjálpað að hafa fallegan setustól og stóra plöntu við glugga með útsýni. Svo má verja peningum í að kaupa fallega handsápu á baðherbergjunum og hafa blóm í vasa inni í stofu.“
„Það ber að forðast að hafa herbergi sem snúa í norður skjanna hvít á litin því þá virka þau steríl og kuldaleg. Betra er að hafa þau í mildum, hlutlausum tónum.“
„Minna er meira. Rannsóknir okkar hafa sýnt að umferðin er 20% meiri inn á eignir sem hafa vandað myndatökurnar. Fólk ver meiri tíma í að skoða þau rými sem ekki eru ofhlaðin,“ segir Joseph Bate fasteignasali.
„Þú þarft að hafa árstímann í huga og hvernig húsið lítur best út. Reyndu að taka myndir að vori eða sumri ef þú átt fallegan garð. Ef stofan er hins vegar sérstaklega notaleg og rómantísk þá er kannski gott að taka myndir að hausti,“ segir India Alexander fasteignasali.
„Þá skiptir framhlið hússins miklu máli. Færðu bílinn úr innkeyrslunni fyrir myndatökuna. Einnig þarf að hreinsa til í garðinum og spúla pallinn. Stundum er gott að láta klippa trjágreinar til þess að fá meiri sól inn í garðinn og inn í húsið.“
„Fyrstu kynni skipta öllu máli. Passaðu að útidyrahurðin sé smekkleg og að handföngin séu ekki stíf eða losaraleg. Ef allt lítur vel út að utan þá fær fólk á tilfinninguna að þetta sé fasteign sem er í góðu viðhaldi og sú tilfinning heldur áfram þegar inn er komið.“
„Veldu fasteignasölu eftir gæðum myndanna og markaðssetningu. Þær ættu að sýna fram á að hafa selt sambærilegar eignir með góðum árangri. Þá er mikilvægt að huga vel að kaupverðinu. Það er ekki sniðugt að verðleggja sig of hátt. Því fleiri sem koma að skoða því meiri líkur á tilboðum.“