Óttar Pálsson lögmaður og meðeigandi á lögfræðistofunni LOGOS hefur fest kaup á lúxusíbúð í Garðabænum. Um er að ræða íbúð á efstu hæð í húsi sem reist var 2008 sem býr yfir miklum töfrum eins og til dæmis 4,2 fm lofthæð sem er telst harla óvenjulegt.
Íbúðin sem Óttar festi kaup á er 115 fm að stærð og hefur verið gerð upp. Stofa og eldhús renna saman í eitt og mynda fallega heild. Rétt fyrir utan gluggann er hin eftirsótta ylströnd Garðabæjar þannig að þegar hlýna tekur getur Óttar farið að stunda sjósund.
Risastórir gluggar prýða íbúðina og í eldhúsinu eru svartar innréttingar með svörtum höldum. Flísar með marmaraáferð lyfta eldhúsinu upp á næsta stig og það gerir líka borðplatan sem prýðir eyjuna en hún er úr steini.
Óttar keypti íbúðina af Arnþóri Inga Kristinssyni og Sóleyju Þorsteinsdóttur. Gildandi fasteignamat íbúðarinnar er 91.050.000 kr.
Smartland óskar Óttari til hamingju með nýju íbúðina!