Læknirinn Björn Zoëga hefur sett eigulega íbúð sína við Bólstaðahlíð í Reykjavík á sölu. Íbúðin er 225 fmð að stærð og er í húsi sem reist var 1949. Meðfylgjandi er aukaíbúð sem hægt er að leigja út.
Björn er framkvæmdastjóri King Faisal Specialist Hospital and Research Centre í Sádi-Arabíu en var áður forstjóri Landspítalans og Karolinska-háskólasjúkrahússins í Stokkhólmi í Svíþjóð. Hann var orðaður við forsetaframboð áður en hann flutti tilSádí-Arabíu.
Björn festi kaup á íbúðinni við Bólstaðahlíð árið 2020. Hún er smekklega innréttuð og búin fallegum húsgögnum og listaverkum.
Í eldhúsinu eru hvítar sprautulakkaðar innréttingar með svartri granít-borðplötu. Í kringum Amerískan-ísskáp eru sérsmíðaðar hillur sem setja svip sinn á eldhúsið.
Litavalið á íbúðinni er feykilega smekklegt en þar má sjá grænan lit sem minnir á árin í kringum 1950 og svo er ljósgrár litur notaður á móti sem er nýtískulegri.