5 dýrustu sumarhús landsins

Á listanum eru fimm falleg sumarhús.
Á listanum eru fimm falleg sumarhús. Samsett mynd

Það er fátt sem toppar það að njóta íslenska sumarsins uppi í sumarbústað. Á fasteignavef mbl.is eru á sölu fjölbreytt sumarhús í öllum stærðum og gerðum, allt frá litlum krútthúsum yfir í stóra lúxusbústaði. 

Smartland tók saman lista yfir fimm dýrustu sumarhús landsins um þessar mundir, en þau eiga það sameiginlegt að vera með lúxus yfirbragð. 

Indriðastaðahlíð 120

Dýrasta sumarhúsið á sölu um þessar mundir stendur við Indriðastaðahlíð í Skorradal. Húsið telur 200 fm og var byggt árið 2009. Stórir gluggar, aukin lofthæð og sérsmíðaðar innréttingar gefa eigninni mikinn glæsibrag, en þar eru alls þrjú svefnherbergi og þrjú baðherbergi.

Ásett verð er 145.000.000 krónur. 

Sjá á fasteignavef mbl.is: Indriðastaðahlíð 120

Kamínustofa með gólfsíðum gluggum setur án efa punktinn yfir i-ið.
Kamínustofa með gólfsíðum gluggum setur án efa punktinn yfir i-ið. Samsett mynd

Vað 3

Við Tungufljót í Bláskóabyggð er að finna fagurt 181 fm sumarhús til sölu sem reist var árið 2009. Aðkoman að sumarhúsinu er sérlega sjarmerandi, en húsinu fylgir 1,4 hektara eignarland ásamt þremur eignarlóðum við hliðina á, samtals um þrír hektarar. 

Ásett verð er 140.000.000 krónur. 

Sjá á fasteignavef mbl.is: Vað 3

Aðkoman að húsinu er afar glæsileg og útsýnið ekki af …
Aðkoman að húsinu er afar glæsileg og útsýnið ekki af verri endanum. Samsett mynd

Höfðabyggð

Í Lundaskógi í Fnjóskadal er til sölu glæsilegt 138 fm sumarhús á tveimur hæðum sem var byggt árið 2022. Falleg hönnun einkennir húsið bæði að innan og utan, en Valbjörn Vilhjálmsson er hönnuður hússins á meðan innanhússhönnuðurinn Sæbjörg Guðjónsdóttir, eða Sæja eins og hún er jafnan kölluð, sá um hönnunina að innan.

Ásett verð er 139.000.000 krónur.

Sjá á fasteignavef mbl.is: Höfðabyggð

Húsið er einkar fallega hannað og ekki skemmir umhverfið fyrir!
Húsið er einkar fallega hannað og ekki skemmir umhverfið fyrir! Samsett mynd

Torfastaðakot 17

Í landi Torfastaða í Bláskógabyggð er til sölu rúmgott sumarhús á einni hæð sem reist var árið 2022. Húsið telur alls 147 fm og státar af góðri lofthæð og stórum gluggum. Við húsið er svo 130 fm sólpallur með átta manna heitum potti sem setur punktinn án efa yfir i-ið.

Ásett verð er 130.000.000 krónur.

Sjá á fasteignavef mbl.is: Torfastaðakot 17

Við húsið er bæði saunaklefi og heitur pottur.
Við húsið er bæði saunaklefi og heitur pottur. Samsett mynd

Birkihlíð 5

Við Birkihlíð í Hvalfjarðarsveit er til sölu stílhreint 150 fm sumarhús á einni hæð. Húsið er innflutt frá Litháen og var reist árið 2023, en þar eru aukin lofthæð, gólfsíðir gluggar og fallegur efniviður í aðalhlutverki.

Ásett verð er 119.900.000 krónur.

Sjá á fasteignavef mbl.is: Birkihlíð 5

Frá borðstofu er útgengt á 189 fm viðarverönd um stóra …
Frá borðstofu er útgengt á 189 fm viðarverönd um stóra rennihurð. Samsett mynd
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál