Guðrún Olsen, framleiðandi heimildamyndarinnar Soviet Barbara, og Gaukur Úlfarsson, kvikmyndagerðamaður og leikstjóri, hafa fest kaup á endaraðhúsi við Giljaland í Fossvogi. Um er að ræða 213,1 fm hús á pöllum sem reist var 1972.
Húsið sjálft er 167,5 fm og rest er bílskúr. Þau greiddu 133.500.000 kr. fyrir húsið sem þau keyptu af Ragnheiði Guðjónsdóttur.
Guðrún og Gaukur bjuggu áður í Vesturbæ Reykjavíkur og fjallaði Smartland um íbúð þeirra þegar hún fór á sölu. Hin glæsilegu húsgögn sem þar voru nefnd eins og borðstofuborðið og bekkurinn frá Ethnicraft og Togo-sófinn úr brúna leðrinu sem Michel Ducaroy hannaði fyrir Ligne Roset árið 1973 munu njóta sín í botn í 108 Reykjavík.
Húsið er Guðrún og Gaukur festu kaup á er mjög upprunalegt og er eins og óslípaður demantur eins og einhver myndi segja. Húsið státar af fallegum innréttingum frá áttunda áratugnum sem eru eftirsóknarverðar.
Smartland óskar Guðrúnu og Gauki til hamingju!