Ester selur 470 milljóna glæsihús í Laugardalnum

Ester Ólafsdóttir hefur sett einbýlishús sitt í Laugardalnum á sölu!
Ester Ólafsdóttir hefur sett einbýlishús sitt í Laugardalnum á sölu! Samsett mynd

Á fallegum útsýnisstað við Laugarásveg í Reykjavík er að finna glæsilegt 316 fm einbýlishús á sem reist var árið 1958. Húsið er í eigu Esterar Ólafsdóttur, en hún rak verslunina Pelsinn í miðborg Reykjavíkur í rúmlega 40 ár ásamt eiginmanni sínum Karli J. Steingrímssyni heitnum.

Hönnun eignarinnar grípur augað samstundis og óhætt að segja að húsið sé afar tignarlegt.  Fram kemur á fasteignavef mbl.is að húsið sé talsvert stærra en opinberar tölur segi til um, eða nær 500 fm. 

Hjónasvíta og útsýnissvalir á efstu hæðinni

Húsið er á þremur hæðum með flottum og rúmgóðum svölum og útisvæði á hverri hæð. Á efstu hæð hússins eru stórar svalir sem veita fallegt útsýni yfir Reykjavík, Bláfjöll, Kollafjörð og Snæfellsnes, en á bak við húsið er skjólríkur hellulagður garður. 

Alls eru fimm svefnherbergi og fjögur baðherbergi í húsinu. Á allri efstu hæðinni er rúmgóð hjónasvíta með baðherbergi og fataherbergi, en þaðan er einnig útgengt á útsýnissvalirnar. Ásett verð er 470.000.000 krónur

Sjá á fasteignavef mbl.is: Laugarásvegur 35

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál