Heillandi 68 fm sumarhús fagurkera í Grímsnesi

Ásett verð er 64.900.000 krónur.
Ásett verð er 64.900.000 krónur. Samsett mynd

Við Birkibraut í landi Vaðness í Grímsnesi er að finna sérlega sjarmerandi sumarhús sem stendur á gróinni 10.000 fm eignarlóð. Húsið telur alls 68 fm og var reist var árið 1999. 

Húsið er fallega hannað þar sem bogadregnar línur og fallegir gluggar setja svip sinn á húsið. Þá hefur sumarhúsið verið innréttað á hlýlegan og notalegan máta þar sem ljósir tónar eru í forgrunni. 

Í björtu og opnu alrými eru eldhús, stofa og borðstofa samliggjandi. Nútímalegur blær er yfir rýminu sem hefur þó þessa eftirsóttu sumarbústaðastemningu sem flesta dreymir um. Stórir gluggar prýða rýmið og viðarpanell á veggjum hefur verið málaður í mjúkum ljósum lit sem tónar fallega við innréttingar og húsmuni. 

Við sumarhúsið er snyrtilegur sólpallur með heitum potti og notalegri …
Við sumarhúsið er snyrtilegur sólpallur með heitum potti og notalegri aðstöðu. Ljósmynd/Af fasteignavef mbl.is
Bogadregnar línur og fallegir gluggar setja svip sinn á sumarhúsið.
Bogadregnar línur og fallegir gluggar setja svip sinn á sumarhúsið. Ljósmynd/Af fasteignavef mbl.is

Hrá áferð í bland við mjúka tóna

Í stofunni stendur fallegur arinn sem grípur augað samstundis og setur án efa punktinn yfir i-ið í rýminu, en hann er með skemmtilegri hrárri áferð sem skapar kontrast við mjúka litinn á veggjum rýmisins. 

Mikill sjarmi er yfir sumarhúsinu sem hefur verið innréttað á …
Mikill sjarmi er yfir sumarhúsinu sem hefur verið innréttað á fallegan máta. Ljósmynd/Af fasteignavef mbl.is
Arininn er með skemmtilegri hrárri áferð sem grípur augað.
Arininn er með skemmtilegri hrárri áferð sem grípur augað. Ljósmynd/Af fasteignavef mbl.is

Alls eru tvö svefnherbergi og eitt baðherbergi í sumarhúsinu auk háalofts sem hefur verið breytt í hjónasvítu. Fallegur hringstigi liggur upp á háaloftið sem er rúmgott með kvistum í lofti og fallegum gluggum. 

Sjá á fasteignavef mbl.is: Birkibraut 2

Á háaloftinu hefur hjónasvíta verið útbúin.
Á háaloftinu hefur hjónasvíta verið útbúin. Ljósmynd/Af fasteignavef mbl.is
Sumarhúsið er bjart með góðri lofthæð.
Sumarhúsið er bjart með góðri lofthæð. Ljósmynd/Af fasteignavef mbl.is
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál