Þetta eru fimm dýrustu einbýli landsins

Á listanum eru fimm sérlega glæsileg og reisuleg einbýli á …
Á listanum eru fimm sérlega glæsileg og reisuleg einbýli á höfuðborgarsvæðinu. Samsett mynd

Á fasteignavef mbl.is er að finna fjölbreytt einbýlishús í öllum stærðum og gerðum á sölu. Eignirnar eru allt frá 33 til 594 fm að stærð og kosta allt frá 14.900.000 til 470.000.000 krónur.

Smartland tók saman lista yfir fimm dýrustu einbýlishúsin sem eru á sölu um þessar mundir, en þau eiga það sameiginlegt að vera sérlega glæsileg.

Laugarásvegur 35

Dýrasta einbýlið sem er á sölu um þessar mundir er við Laugarásveg í Reykjavík. Húsið er í eigu Esterar Ólafsdóttur sem rak verslunina Pelsinn í miðborg Reykjavíkur í rúmlega 40 ár ásamt eiginmanni sínum Karli J. Steingrímssyni heitnum.

Eignin telur 316 fm og var reist árið 1958, en hún státar af fimm svefnherbergjum og fjórum baðherbergjum. 

Ásett verð er 470.000.000 krónur.

Sjá á fasteignavef mbl.is: Laugarásvegur 35

Eignin telur 316 fm.
Eignin telur 316 fm. Samsett mynd

Stórakur 5

Næstdýrasta einbýlið á sölu er við Stórakur í Garðabæ. Eigendur hússins eru Hannes Hilmarsson, einn af stærstu eigendum flugfélagsins Atlanta, og eiginkona hans Guðrún Þráinsdóttir. Það vakti athygli síðastliðið vor þegar hjónin festu kaup á dýrasta einbýlishúsi sem selt hefur verið hérlendis, einbýlishúsi Ingu Lindar Karlsdóttur sem samkvæmt kaupsamningi seldist á 850.000.000 krónur. 

Eignin telur 386 fm og var reist árið 2015 en það var Ívar Örn Guðmundsson arkitekt sem hannaði húsið að utan sem innan. Alls eru sex svefnherbergi í húsinu.

Ásett verð er 450.000.000 krónur. 

Sjá á fasteignavef mbl.is: Stórakur 5

Ívar Örn Guðmundsson arkitekt hannaði húsið bæði að innan og …
Ívar Örn Guðmundsson arkitekt hannaði húsið bæði að innan og utan. Samsett mynd

Gullakur 9

Við Gullakur í Garðabæ er til sölu 375 fm einbýlishús sem reist var árið 2008. Arkitekt hússins er Valdimar Harðarson hjá ASK Arkitektar. Alls eru fimm svefnherbergi og þrjú baðherbergi í húsinu. 

Ásett verð er 375.000.000 krónur. 

Sjá á fasteignavef mbl.is: Gullakur 9

Arkitekt hússins er Valdimar Harðarson.
Arkitekt hússins er Valdimar Harðarson. Samsett mynd

Almannakór 11

Við Almannakór í Kópavogi stendur fjórða dýrasta einbýlishúsið sem er á sölu í dag. Eignin telur alls 413 fm og var reist árið 2014, en það var Björgvin Halldórsson arkitekt sem hannaði húsið og sá Björn Jóhannsson landslagsarkitekt um að hanna lóðina í kring. Eignin státar af sex svefnherbergjum og þremur baðherbergjum. 

Ásett verð er 350.000.000 krónur. 

Sjá á fasteignavef mbl.is: Almannakór 11

Björgvin Halldórsson arkitekt sá um hönnun hússins sem er 413 …
Björgvin Halldórsson arkitekt sá um hönnun hússins sem er 413 fm að stærð. Samsett mynd

Eikarás 5

Við Eikarás í Garðabæ er til sölu 403 fm einbýlishús sem reist var árið 2003. Alls eru fimm svefnherbergi og fjögur baðherbergi í húsinu. 

Ásett verð er 350.000.000 krónur. 

Sjá á fasteignavef mbl.is: Eikarás 5

Húsið telur 403 fm og var reist árið 2003.
Húsið telur 403 fm og var reist árið 2003. Samsett mynd
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál