184,5 milljóna þakíbúð í Reykjavík

Íbúðin er mjög vel búin að öllu leyti.
Íbúðin er mjög vel búin að öllu leyti. Samsett mynd

Við Hlíðarfót í Reykjavík er að finna 194 fm íbúð á efstu hæð í lyftublokk sem var reist árið 2020. Íbúðin er einstaklega heillandi, björt, rúmgóð og huggulega innréttuð. 

Falleg dimmblá eldhúsinnrétting er það sem grípur augað við fyrstu sýn. Glæsilegur gráleitur marmari frá Fígaró er á borðplötum, hliðum eldhúseyju og einnig á milli skápa sem skapar notalegt andrúmsloft í rýminu. Öll eldhústækin eru af vönduðustu gerð og um leið hinar smekklegustu. 

Veggir í alrýminu eru málaðir í hlýjum gráum tón sem fer vel við innréttingar. 

Gólfhitakerfi er í allri íbúðinni og gólfsíðir gluggar sem njóta sín vel og hleypa dagsbirtunni inn. 

Sjá nánar á Fasteignavef mbl.is: Hlíðarfótur 15

Eldhús er smekklegt og móðins.
Eldhús er smekklegt og móðins. Skjáskot/Lind Fasteignasala
Svefnherbergið er bjart og og hlýlegt.
Svefnherbergið er bjart og og hlýlegt. Skjáskot/Lind Fasteignasala
Íbúðin er afar rúmgóð.
Íbúðin er afar rúmgóð. Skjáskot/Lind Fasteignasala
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál