Félag Ríkharðs seldi einbýli með 11 milljóna tapi

Edda Hermannsdóttir og Ríkharður Daðason seldu félagi hans einbýlishús sitt …
Edda Hermannsdóttir og Ríkharður Daðason seldu félagi hans einbýlishús sitt á 270.000.000 kr. Nú hefur húsið verið selt á 259.000.000 kr. Samsett mynd

Við Sunnuveg í Reykjavík er að finna 283,3 fm einbýlishús sem reist var 1971. Ríkharður Daðason fyrrverandi fótboltamaður og núverandi fjárfestir átti húsið ásamt eiginkonu sinni, Eddu Hermannsdóttur sem er samskiptastjóri hjá Íslandsbanka. Þegar þau keyptu hús við Bakkavör 12 á Seltjarnarnesi seldu þau félagi hans, RD 11 ehf., húsið á 270.000.000 kr. 

Eftir að kaupin fóru fram var húsið aftur auglýst til sölu. Þann 29. júlí var húsið selt á 259.000.000 kr.

Hjónin og flugmennirnir, Gyða Bergs og Steingrímur Aðalsteinsson, keyptu húsið af félagi Ríkharðs og greiddu fyrir það 259.000.000 kr. eða 11.000.000 kr. minna en félagið keypti húsið í júní 2023. 

Smartland óskar Gyðu og Steingrími til hamingju með húsið. Einhver myndi segja að þau hafi gert góð kaup!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál