Vandað og smart endaraðhús í Garðabænum

Eldhúsið er frá KVIK og er hvítt að lit með …
Eldhúsið er frá KVIK og er hvítt að lit með sprautulökkuðum hurðum.

Við Ásbúð í Garðabæ er að finna einstaklega hlýlegt og notalegt raðhús. Húsið var reist 1979 og hefur verið endurnýjað mikið síðustu ár. Eigendur hússins eru Jón Heiðar Gunnarsson markaðsstjóri Forlagsins og Bergþóra Halldórsdóttir sérfræðingur hjá Samtökum iðnaðarins. Þau hafa lagt mikinn metnað í að gera heimilið sem glæsilegast. 

Húsið er á tveimur hæðum og með fallegum og skjólgóðum garði.

Eyjan er mjög stór og margir geta setið við hana.
Eyjan er mjög stór og margir geta setið við hana.
Í eldhúsinu er vínkælir og stórir gluggar.
Í eldhúsinu er vínkælir og stórir gluggar.

Árið 2020 var eldhúsið endurnýjað. Innréttingar í eldhúsinu koma frá KVIK og eru hvítar sprautulakkaðar með stórri eyju og miklu skápaplássi. Qartz-steinn er á borðplötum og fyrir ofan eyjuna eru hangandi ljós eftir Verner Panton. Stórir gluggar eru í eldhúsinu og því er eldhúsið bjart og fallegt. 

Gengið er niður nokkur þrep inn í borðstofuna en stofa og eldhús eru á sömu slóðum. 

Baðherbergið á efri hæðinni var endurnýjað 2020 eða á sama tíma og eldhúsið. Þar eru nýjar flísar á veggjum og gólfi og sturtuklefi með glerhlið. Falin lýsing er á bak við spegilinn á baðherberginu sem gerir lýsinguna í rýminu góða. 

Gott vinnupláss er í eldhúsinu.
Gott vinnupláss er í eldhúsinu.

Á neðri hæðinni er forstofa, svefnherbergi, þvottahús og bílskúr. Einhver myndi segja að þetta væri eitt best skipulagða þvottahúsið í Garðabæ en hver og einn verður að dæma það af myndunum. 

Sjá nánar á fasteignavef mbl.is: Ásbúð 67

Stofan er mjög notaleg með mikið af bókahillum.
Stofan er mjög notaleg með mikið af bókahillum.
Gengið er tvær tröppur niður í borðstofuna.
Gengið er tvær tröppur niður í borðstofuna.
Úr borðstofunni er útgengi út í garð.
Úr borðstofunni er útgengi út í garð.
Fallegt parket prýðir gólfin. Það er nýlegt.
Fallegt parket prýðir gólfin. Það er nýlegt.
Horft inn herbergisganginn.
Horft inn herbergisganginn.
Baðherbergið var endurnýjað 2020.
Baðherbergið var endurnýjað 2020.
Tvær tegunir af flísum prýða baðherbergið.
Tvær tegunir af flísum prýða baðherbergið.
Hér má sjá eitt best skipulagða þvottahúsið í Garðabæ.
Hér má sjá eitt best skipulagða þvottahúsið í Garðabæ.
Hér er hver hlutur á sínum stað og allt í …
Hér er hver hlutur á sínum stað og allt í röð og reglu.
Stiginn á milli hæða er léttur.
Stiginn á milli hæða er léttur.
Garðurinn er gróinn.
Garðurinn er gróinn.
Um er að ræða endaraðhús við Ásbúð í Garðabæ.
Um er að ræða endaraðhús við Ásbúð í Garðabæ.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál