Eyjólfur Pálsson, stofnandi EPAL, segir í nýjum pistli á Smartlandi að það sé sorglegt að sjá hvernig stofnanir og fyrirtæki henda góðum og gömlum munum þegar húsnæði er tekið í gegn. Virðing hans fyrir hönnun og sjálfbærni er meiri en fjárhagslegur ávinningur þess að henda og kaupa nýtt.
Ég hef oft orðið vitni að því þegar stofnanir eða fyrirtæki ákveða að fríska upp á útlitið með því að henda hinu gamla og kaupa allt nýtt inn. Sem kaupmaður ætti ég eflaust að fagna þessari tilhneigingu íslenskra stjórnenda en það geri ég ekki. Ástríða mín og virðing fyrir hönnun og sjálfbærni er meiri en svo. Mér þykir vænt um falleg húsgögn og finnst sorglegt að sjá þeim hent út eins og þau séu einskis virði þegar næsta tískubóla ríður yfir.
Góð húsgögn eru byggð til að endast og með þeim er hægt að móta rými sem er ekki aðeins umhverfisvænt heldur einnig ríkt af karakter og sögu.
Húsmunir tengjast menningararfleifð okkar ekki síður en listmunir. Þeir endurspegla hönnunarstefnur, efni og tækni sem var ríkjandi þegar þeir voru smíðaðir. Oft er hægt að aðlaga húsgögn að breyttum þörfum og tímum með nokkuð einföldum hætti. Sum húsgögn geta fengið nýtt hlutverk, önnur fengið ný klæði með bólstrun eða lökkun og ljós verið endurvíruð til að mæta breyttum kröfum. Þannig er hægt að skapa skemmtilegan og fallegan samruna gamals og nýs.
Á hverju ári er milljónum tonna af húsgögnum hent. Þau fylla upp urðunarstaði og sóa dýrmætum auðlindum. Framleiðsla nýrra húsgagna krefst umtalsverðrar orku, vatns og hráefna sem stuðlar að mengun og umhverfisspjöllum. Með því að velja að endurnota geta fyrirtæki minnkað kolefnisfótspor sitt og stuðlað að aukinni sjálfbærni og umhverfisvernd.
Endurnotkun dregur ekki aðeins úr beinum umhverfisáhrifum heldur stuðlar það einnig að menningu ábyrgðar og nýsköpunar. Starfsfólk er stolt af því að starfa á sjálfbærum vinnustað og viðskiptavinir eru líklegri til að eiga viðskipti við fyrirtæki sem deila umhverfissjónarmiðum þeirra á borði jafnt sem orði.
Með því að endurnota vel smíðuð húsgögn og fallegar hönnunarvörur geta fyrirtæki og stofnanir tryggt að fjárfesting þeirra standist tímans tönn. Kostnaður við endurbætur eða lagfæringar er oft mun lægri en að kaupa nýtt, sem gerir fyrirtækjum og stofnunum kleift að ráðstafa fjármagni á skilvirkari hátt. Endurnotkun húsgagna er einnig kostur sem gefur til baka til samfélagsins því hún styður við og eflir mikilvægar iðngreinar á Íslandi, á borð við húsgagnasmíði og bólstrun.
Fyrirtæki og stofnanir sem eru að gera upp hjá sér ættu að byrja á því að meta möguleika hvers hlutar, jafnvel kalla eftir sérfræðingum til skrafs og ráðagerða. Ég hef sjálfur oft verið kallaður til í slíka hugmyndavinnu og hika ekki við að svara kalli ef leitað er til mín.
Með því að fjárfesta í gæðum og sögu er bæði hægt að skapa hagnýt og falleg rými og leggja leiðina fyrir sjálfbæra framtíð.