Draumaíbúð með útsýni í hjarta 101

Í stofunni eru þrír gluggar sem státa af fallegu útsýni.
Í stofunni eru þrír gluggar sem státa af fallegu útsýni. Ljósmynd/Sölumyndir.is

Við Njálsgötu í Reykjavík  er að finna einstaklega smekklega þriggja herbergja íbúð á þriðju hæð sem státar af fallegu útsýni. Íbúðin sjálf er 89 fm og var húsið sjálft reist 1927. Árið 2021 var íbúðin mikið endurnýjuð. 

Eldhúsið er í sama rými og stofa og borðstofa. Þar er hvít sprautulökkuð innrétting með viðarborðplötum. Fyrir framan eldhúsið er borðstofuborð sem tengist inn í stofuna. Þar er að finna þrjá glugga sem státa af útsýni í norðaustur. 

Horft úr stofunni inn í eldhús.
Horft úr stofunni inn í eldhús. Ljósmynd/Sölumyndir.is
Eldhúsinnréttingin er með fulningahurðum.
Eldhúsinnréttingin er með fulningahurðum. Ljósmynd/Sölumyndir.is
Borðstofuborðið tengir stofu og eldhús.
Borðstofuborðið tengir stofu og eldhús. Ljósmynd/Sölumyndir.is

Svalir í suður

Hjónaherbergi er gert úr hluta af stofunni og eru útgengt út á svalir úr því. Svalirnar snúa í suður en á móti svölunum er stór gluggi sem er byggður í hálfgerðan boga. Hann gefur herberginu sterkan svip. 

Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf með steingráum flísum. Hvít sprautulökkuð innrétting er undir vaski en á baðherberginu er pláss fyrir þvottavél. 

Svalirnar snúa í suður.
Svalirnar snúa í suður. Ljósmynd/Sölumyndir.is
Svalirnar eru út af hjónaherberginu.
Svalirnar eru út af hjónaherberginu. Ljósmynd/Sölumyndir.is

Íbúðin er búin fallegum húsgögnum, lömpum, listaverkum og eftirtektarverðum munum. Hver hlutur á sínum stað eins og sést á myndunum. 

Sjá nánar á fasteignavef mbl.is: Njálsgata 64

Harðparket er á gólfum og hvítir golflistar.
Harðparket er á gólfum og hvítir golflistar. Ljósmynd/Sölumyndir.is
Hjónarúmið er haft undir glugganum sem gefur herberginu öðruvísi yfirbragð.
Hjónarúmið er haft undir glugganum sem gefur herberginu öðruvísi yfirbragð. Ljósmynd/Sölumyndir.is
Horft út á svalir.
Horft út á svalir. Ljósmynd/Sölumyndir.is
Í hjónaherberginu er stór og myndarlegur gluggi.
Í hjónaherberginu er stór og myndarlegur gluggi. Ljósmynd/Sölumyndir.is
Útihurðin er glerjuð.
Útihurðin er glerjuð. Ljósmynd/Sölumyndir.is
Í barnaherberginu er stór gluggi sem hleypir mikilli birtu inn.
Í barnaherberginu er stór gluggi sem hleypir mikilli birtu inn. Ljósmynd/Sölumyndir.is
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál