Kolbeinn Sigþórsson keypti 225 milljóna glæsihús

Kolbeinn Sigþórsson hefur fest kaup á einstöku húsi í Grafarvogi.
Kolbeinn Sigþórsson hefur fest kaup á einstöku húsi í Grafarvogi. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Íslenskur fótboltamaður, Kolbeinn Sigþórsson, hefur fest kaup á 282,7 fm einbýlishúsi í Grafarvogi. Húsið rataði í fréttir Smartlands þegar það var auglýst til sölu enda sérlega vandað og íburðarmikið. Ef einhvern tímann er hægt að segja að einbýli státi af miklu innanrými og það sé hátt til lofts og vítt til veggja þá er það þarna. 

Húsið var reist 2001 og státar af einstaklega heillandi arkitektúr. Húsið er alveg við sjóinn og býr yfir útsýni út á sundin blá. Kolbeinn mun geta fylgst með skipaumferð út um gluggann því engin byggð er fyrir neðan húsið, bara sjór og íslensk náttúra. 

Kolbeinn greiddi 225.000.000 kr. fyrir húsið sem hann mun fá afhent 1. febrúar 2025. Húsið keypti hann af Einari Erni Benediktssyni og Sigrúnu Guðmundsdóttur. 

Smartland óskar Kolbeini til hamingju með fasteignakaupin! 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Guðrún Kristjánsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Júlía heilsumarkþjálfi
Júlía heilsumarkþjálfi

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál