Sigurður Pálmi og Silja keyptu 180 milljóna útsýnishús

Húsið er á góðum útsýnisstað á Seltjarnarnesi.
Húsið er á góðum útsýnisstað á Seltjarnarnesi.

Sigurður Pálmi Sigurbjörnsson viðskiptamaður og Silja Magnúsdóttir ljósmyndari hafa fest kaup á útsýnishúsi á Seltjarnarnesi. Um er að ræða 287,9 fm einbýli sem reist var 1979. Húsið er staðsett innst í botnlanga og státar af tvöföldum bílskúr. Sigurður Pálmi og Silja greiddu 180.000.000 kr. fyrir húsið en fyrri eigandi er Sigurður G. Einarsson. 

Fyrir utan húsið er stórt og myndarlegt steypt bílaplan.
Fyrir utan húsið er stórt og myndarlegt steypt bílaplan.

Húsið er hraunað að utan og fylgir þeim byggingarstíl sem var vinsæll 1979. Gluggar og þakkantur eru í vínrauðum lit og er garðskáli í húsinu. 

Fyrir utan húsið er steypt bílaplan sem rúmar myndarlegan bílaflota. 

Þótt húsið sé staðsett innst í botnlanga þá hefur það að geyma fallegt útsýni út á sundin blá og Esjuna. 

Smartland óskar Sigurði Pálma og Silju til hamingju með nýja húsið! 

Í húsinu er tvöfaldur bílskúr.
Í húsinu er tvöfaldur bílskúr.
Gluggar og þakkantur eru máluð í vínrauðum lit.
Gluggar og þakkantur eru máluð í vínrauðum lit.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda