Íris Ósk selur 248 milljóna hús í Garðabæ

Ljósmynd/Kristján Orri Jóhannsson

Íris Ósk Valþórsdóttir, rekstrarstjóri Vaxa, hefur sett glæsihýsi sitt á sölu. Um er að ræða 205 fm einbýlishús sem reist var 1991. Húsið var teiknað af Baldri Svavarssyni arkitekt. Húsið hefur verið mikið endurnýjað á síðustu árum. Viktoría Hrund Kjartansdóttir arkitekt hannaði breytingar innanhúss. Búið er að skipta um lýsingu í húsinu og endurnýja innréttingar svo eitthvað sé upptalið. Gólfhiti var settur í húsið og skipt um gólfefni að hluta til. 

Ljósmynd/Kristján Orri Jóhannsson
Ljósmynd/Kristján Orri Jóhannsson

Nýtt eldhús! 

Viktoría Hrund Kjartansdóttir hannaði nýtt eldhús í húsinu. Hurðar á innréttingu eru úr bæsaðri eik og er Taj Mahal kvarrtsít á borðplötum og flæðir efnið upp á veggi á milli skápa. Í eldhúsinu er stór eyja og mikið pláss til athafna. Tveir innbyggðir ísskápar eru í innréttingunni. 

Ljósmynd/Kristján Orri Jóhannsson
Ljósmynd/Kristján Orri Jóhannsson
Ljósmynd/Kristján Orri Jóhannsson
Ljósmynd/Kristján Orri Jóhannsson

Sjónsteypa setur svip

Húsið er á tveimur hæðum og setur stór og myndarlegur veggur úr sjónsteypu svip sinn á innra rými hússins. Mjög hátt er til lofts í stofunni og hringlaga gluggi gefur heimilinu sérstakt yfirbragð. 

Eins og sjá má á myndunum er heimilið búið heillandi húsgögnum, listaverkum og lömpum, ljósum og öðru sem fegrar og hlýjar. 

Sjá nánar á fasteignavef mbl.is: Birkihæð 14

Ljósmynd/Kristján Orri Jóhannsson
Ljósmynd/Kristján Orri Jóhannsson
Ljósmynd/Kristján Orri Jóhannsson
Ljósmynd/Kristján Orri Jóhannsson
Ljósmynd/Kristján Orri Jóhannsson
Ljósmynd/Kristján Orri Jóhannsson
Ljósmynd/Kristján Orri Jóhannsson
Ljósmynd/Kristján Orri Jóhannsson
Ljósmynd/Kristján Orri Jóhannsson
Ljósmynd/Kristján Orri Jóhannsson
Ljósmynd/Kristján Orri Jóhannsson
Ljósmynd/Kristján Orri Jóhannsson
Ljósmynd/Kristján Orri Jóhannsson
Ljósmynd/Kristján Orri Jóhannsson
Ljósmynd/Kristján Orri Jóhannsson
Ljósmynd/Kristján Orri Jóhannsson
Ljósmynd/Kristján Orri Jóhannsson
Ljósmynd/Kristján Orri Jóhannsson
Ljósmynd/Kristján Orri Jóhannsson
Ljósmynd/Kristján Orri Jóhannsson
Ljósmynd/Kristján Orri Jóhannsson
Ljósmynd/Kristján Orri Jóhannsson
Ljósmynd/Kristján Orri Jóhannsson
Ljósmynd/Kristján Orri Jóhannsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Guðrún Kristjánsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Júlía heilsumarkþjálfi
Júlía heilsumarkþjálfi

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál