Glæsihús við Stigahlíð selt á 230 milljónir

Við Stigahlíð í Reykjavík er að finna 296.3 fm einbýlishús sem reist var 1984. Húsið var auglýst til sölu seint á síðasta ári en er nú selt. Um er að ræða eitt af þessum húsum sem setja svip sinn á Stigahlíðina því það blasir við þegar keyrt er fram hjá Suðurveri og Menntaskólanum við Hamrahlíð. 

Kristján Oddur Sæbjörnsson og Ragnheiður Ásta Pétursdóttir eru kaupendur hússins og greiddu þau 230.000.000 kr. fyrir það. Húsið keyptu þau af Jóhanni Loan Constantin Solomon. 

Allt vandað og fínt

Húsið er vandað með sérsmíðuðum innréttingum í eldhúsi og á baðherbergjum. Þar er fiskibeinaparket á gólfum og arinn í stofu. Tvöfaldur bílskúr prýðir húsið og hefur nýlega verið skipt um glugga og öðru viðhaldi sinnt. 

Smartland óskar Kristjáni Oddi og Ragnheiði Ástu til hamingju með húsið! 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Linda Sigríður Baldvinsdóttir
Linda Sigríður Baldvinsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Júlía heilsumarkþjálfi
Júlía heilsumarkþjálfi

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál